Framtíðarsmiðjan

Námskeið fyrir grunnskólanemendur á aldrinum 14-15 ára. Valkvætt að mæta einu sinni í viku í 8 vikur eða tvisvar í 4 vikur. Efnið er þrautreynt og hefur gefið góða raun. Nánar

Fyrirtækjasmiðjan

Fyrirtækjasmiðjan er 13 vikna námskeið fyrir framhaldsskólanema sem miðar að því að efla skilning þeirra á fjölbreyttum fyrirtækjarekstri. Skoða nánar..

Leiðbeinendasmiðjan

Ráðgjafar hjá Junior Achievement - Ungum frumkvöðlum fá þjálfun í leiðbeinendatækni áður en þeir hefja störf. Fyrir leiðbeinendur þá má finna nokkur góð ráð má finna hér...

Verðlaunaumsókn

Nú líður að lokum Fyrirtækjasmiðjunnar og miðað við stemninguna sem var á Vörumessunni um daginn þá verður samkeppnin hörð um verðlaun og viðurkenningar.

Föstudaginn 30. mars þarf að skila inn verðlaunaumsókn.  Umsóknareyðublaðið er  hér  verðlaunaumsókn .  Hana þarf hvert fyrirtæki að fylla út samviskusamlega.  Best er að vinna verðlaunaumsókn upp úr ársreikningi.

Skila þarf útprentaðri umsókn, snyrtilega frá genginni, ásamt vinnumöppu og sýnishorni á skrifstofu Ungra Frumkvöðla, í Nethyl 2b, 2. hæð, föstudaginn 30. mars kl. 12.-14

Viðskipta og framkvæmdaáætlun gildir 40%

Rekstrar og efnahagsreikningur, gildir 10%

Lykiltölur og dagsetningar, gildir 25%

Kynningarefni, auglýsingar og sýnishorn, gildir 15%

Athugið að þá má fjölga blaðsíðum í sniðmátinu. 

10 fyrirtæki verða valin af dómnefnd til að kynna sig í 3-4 mínútur á Uppskeruhátíð. Þar má ekki notast við Power Point glærur heldur munnlegan flutning og geta allir starfsmenn tekið þátt í henni ef svo ber undir. 

Nánari upplýsingar um Uppskeruhátíð er nær dregur.

 

 

Vörumessan að hefjast

Föstudaginn 9. mars hefst Vörumessa Fyrirtækjasmiðjunnar.  Að venju verður hún í Smáralind.  Það eru 24 nemendafyrirtæki sem að þessu sinni mæta til leiks til að kynna sig og sínar vörur sem eru mjög fjölbreyttar.  

Nánar...

Markaðsmál á mannamáli

Þriðjudaginn 28. febrúar er öllum þátttakendum í Fyrirtækjasmiðjunni boðið á klukkustundarlangt "örnámskeið" á fyrirlestrarformi um markaðsmál.

Það er markaðssnillingurinn hún Þóranna K. Jónsdóttir sem býður fram krafta sína og þekkingu og ætlar að tala um helstu trixin.

Þetta er góður tímapunktur, nú eru allflestir að undirbúa sig á fullu fyrir Vörumessuna í Smáralind þannig að það verður fínt að fá góð ráð til að nálgast markhópinn sinn og selja alveg grimmt, bæði þar og annarsstaðar.

 

Örnámskeiðið verður í Bláa salnum á 2. hæð í Verslunarskólanum kl. 15.30. þriðjudaginn 28. febrúar.  ( á sömu hæð og marmarinn og matbúðin )

Ath ! Skólanum er lokað kl. 15.00 þannig að það verður einungis hægt að komast inn að sunnanverðu (hjá íþróttahúsinu, á móti Hamborgarabúllunni)

Kennarar, vinsamlega komið þessum skilaboðum til nemenda ykkar.

Vonast til að sem flestir nýti sér tækifærið og mæti.

 

Kíkið á þetta:

 

heimasíða Þórönnu Facebook Þórönnu - Markaðsmál á mannamáli !

Spark af stað

Þrátt fyrir eitt versta veður i manna minnum mættu um 70-80 manns í HR til að SPARKa af stað Fyrirtækjasmiðjunni.  Takk fyrir komuna þið hetjur sem lögðuð út í veðrið. 

Bestu kveðjur og þakkir til HR og Ara Kristins Jónssonar rektors fyrir hvetjandi orð, hann veit sko hvað hann syngur þegar kemur að nýsköpun enda uppalinn í Sílikondal og hjá NASA. Til gamans fylgir hér annar fyrirlestur Ara rektors hjá TED Reykjavík frá því í desember.

Fyrir ykkur og þá sem ekki komust, má finna allar helstu upplýsingar sem fram komu, hér fyrir neðan, á forsíðunni.

Hér er slæðusýningin frá Sparkinu.   Einnig látum við fylgja með Facebook tengil, endilega smella á LIKE. 

Gangi ykkur vel !

Gögn nemenda í Fyrirtækjasmiðjunni

Til þátttakenda í Fyrirtækjasmiðjunni:  Vinsamlega athugið að til að fá aðgang að gögnum sem tilheyra Fyrirtækjasmiðjunni þarf að skrá sig inn á síðuna hér til hægri.  Þar er einnig að finna dagatal og verðlaunaumsókn og skráningarblað  sem hvert fyrirtæki þarf að fylla út og senda á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ásamt kvittun fyrir 5000 kr. skráningargjaldi. Þetta gjald er ígildi skráningar í fyrirtækjaskrá. Á skráningarblaði þarf að vera skýrt hver er ábyrgðarmaður bankareiknings sem úthlutað verður til fyrirtækisins og fær hann einn umboð til aðgangs að honum.

Reikningsnúmer til að leggja skráningargjaldið inná er: 515-26-651051  og kt. 701002-3420.

Öll fyrirtækin hafa fengið möppu með námsgögnum. Hægt er að nálgast öll gögnin með því að smella HÉR

Dagatal vorannar Fyrirtækjasmiðjunar er Hér 

Eitt af því fyrsta sem þarf að gera er að sækja um starf, atvinnuumsókn er HÉR 

 

Fleiri greinar...

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Fyrsta
Fyrri
1