|
Memor, sigurvegari Fyritækjasmiðjunnar 2008 undirbýr nú af kappi þátttöku í Evrópukeppni Ungra Frumkvöðla sem fram fer í Stokkhólmi 24.-27. júlí n.k. Memor fyrirtækið stóð sig sérlega vel í keppninni hérna heima og er mikill hugur í þeim fyrir Svíþjóðarferðina. Tólf manna hópur fer utan, fimm formlegir fulltrúar fyrirtækisins og fjórir ráðgjafar sem einnig eru nemendur, auk kennara síns og stjórnenda Ungra Frumkvöðla á Íslandi. Öll þátttökufyrirtæki þurfa að skila inn skýrslu, flytja kynningu á sviði fyrir framan áhorfendur og dómara, taka þátt í sérstökum dómararviðtölum og kynna afurð sína af kynningarbás. Við óskum Memor með Recall Flash Card hugbúnaðinn sinn góðs gengis og frábærrar skemmtunnar í Stokkhólmi. |
|
|
Uppskeruhátíð Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla var haldin í aðalstöðvum Glitnis, Kirkjusandi, í dag, föstudaginn 25. apríl. Niðurstöður námskeiðsins voru kynntar og verðlaun veitt fyrir besta fyrirtækið auk sex annarra verðlaunaflokka. Við mat á árangri var miðað við arðsemi, viðskiptaáætlun og stjórnun. Glitnir er aðalstyrktaraðili Fyrirtækjasmiðjunnar.
Sigurvegari ársins, þ.e. besta fyrirtækið, var Memor frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Memor hannaði og framleiddi hugbúnað fyrir glósugerð. Dómnefnd þótti varan mjög áhugaverð og öll stjórnun og áætlanagerð til fyrirmyndar. Með sigrinum vann Memor sér inn þátttökurétt á Evrópukeppni ungra frumkvöðla sem fer fram í Stokkhólmi í Svíþjóð í sumar. Memor hlaut einnig verðlaunin fyrir björtustu vonina en þau verðlaun eru veitt fyrir vöru eða þjónustu sem að mati dómnefndar þykir líklegust til að ná árangri í framtíðinni.
Í dómnefnd sátu Pálína Árnadóttir, endurskoðandi og einn eigenda Deloitte, Vilborg Þórarinsdóttir, útibússtjóri Glitnis á Suðurlandsbraut og Dr. Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks frumkvöðlaseturs. 
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Uppskeruhátíð Fyrirtækjasmiðjunnar 2008
verður haldin föstudaginn 25. apríl 2008 kl. 15.00-16.30 í höfuðstöðvum Glitnis á Kirkjusandi, sem er aðalstyrktaraðili Fyritækjasmiðjunnar og býður okkur enn og aftur aðstöðu sína og léttar veitingar
Þar verða veitt verðlaun fyrir eftirtalin atriði
- Besta ársskýrslan
- Besta viðskiptaáætlunin
- Besta firmamerki og/eða nafn
- Mesta nýsköpun og frumlegheit
- Bjartasta vonin.
- Bestu markaðs- og sölumálin
- Besta fyrirtækið
Umsókn um verðlaun ásamt ársskýrslu fyrirtækisins skal skila á skrifstofu Ungra frumkvöðla, að Nethyl 2B 110 Reykjavík, í síðasta lagi kl. 14.00 þann 21. apríl n.k. Dómnefnd mun yfirfara umsóknir og forval mun fara fram. Haft verður beint samband við stjórnendur þeirra JA fyrirtækja sem munu fá að kynna fyrirtækin sín fyrir framan dómnefnd þann 25. apríl.
Allir geta átt von á verðlaunum þó svo ekki fari fram kynning.
Besta fyrirtækið vinnur sér inn þátttökurétt í evrópukeppni Ungra frumkvöðla í Svíþjóð í sumar.
Kennarar og ráðgjafar eru hvattir til að mæta.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 13 - 16 af 17 |