Hin árlega vörumessa Ungra frumkvöðla fer fram í Smáralind 27-28 mars n.k.
Þar munu nemendur þeirra framhaldsskóla sem tekið hafa þátt í Fyrirtækjasmiðjunni í vetur mæta og kynna fyrirtækin sín og vörur eða þjónustu. Messan hefst uppúr hádegi á föstudegi en formleg opnun er kl 16:00 sama dag. Vörumessunni líkur kl 15.00 daginn eftir.
|
|
Fyrirtækjasmiðjan hefst með SparkiFöstudaginn 16. janúar kl. 15.00 – 16.30 höldum við SPARKIÐ sem er upphafsfundur Fyrirtækjasmiðjunnar SPARKIÐ verður haldið í húsakynnum Háskólans í Reykjavík í stofu 131b
Dagskráin er hefðbundin, ávörp og kynningar en ekki verður boðið upp á veitingar að þessu sinni.
Mikilvægt er að allir þátttakendur sem vettlingi geta valdið mæti á Sparkið en gott væri að fá að vita ef einhver hópur/skóli forfallast. Við munum afhenda þeim sem ekki hafa fengið, hlutabréfin á staðnum
|
|
|
Fyrirtækjasmiðjan 2009
Gleðilegt ár !
Fyrirtækjasmiðjan er nú að fara í gang í 7 framhaldsskólum. Á þriðja hundruð nemendur taka þátt að þessu sinni. Búast má við að yfir 20 fyrirtæki verði stofnuð og verður spennandi að sjá framvindu mála næstu 13-15 vikur. Fyrirkomulag er eins og áður, Sparkið, upphafshátíðin verður haldin 16. janúar og einnig verður boðið upp á vörumessu um miðbik tímabilsins og uppskeruhátíð í lokin. Þátttakendur sækja um aðgang hér á síðunni til að nálgast ítarefni, eyðublöð og dagatal vekefnisins. í þessari vikur eru þátttakendur að fá í hendur fyrirtækjamöppur, kynna sér verkefnið og sinna forvinnu eins og ráðningum í stöður, nafngift ofl. Við hjá Ungum Frumkvöðlum hvetjum alla til að vera frjóir í hugsun, nákvæmir í vinnubrögðum og virkir til þátttöku. Einnig viljum við hvetja nemendur og kennara til að útvega sér ráðgjafa, aðila úr atvinnulífinu, jafnvel með reynslu af rekstri eða viðskiptamenntun, til að koma inn til skrafs og ráðagerða t.d. þrisvar á tímabilinu. Utanaðkomandi álit og ráðgjöf gæðir verkefnið lífi og gefur nemendum innsýn í atvinnulífið.
Gangi ykkur vel.
Ungir Frumkvöðlar
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 9 - 12 af 17 |