|
Friday, 27 July 2007 |
|
Af hverju að velja Junior Achivement International:
Eftirspurn eftir námskeiðum Ungra frumköðla, UF, mun halda áfram að vaxa af nokkrum ástæðum; Í fyrsta lagi eru mörg lönd að sverma fyrir erlendum fjárfestum, þátttöku og samvinnu. Velgengni UF í að skapa nokkurskonar sýndar/veruleika viðskiptaumhverfi fyrir nemendur sýna hefur verið mikil, ekki síst meðal þjóða í viðskiptavæðingu. Sem dæmi má nefna að í nýlegri könnun frá Gambíu má sjá að 98% nemenda UF sýndu jákvæðara viðhorf gagnvart viðskiptum sem atvinnu eftir að hafa farið í gegnum námsefni UF. Í öðru lagi er mikilvægt að efla almennan skilning á því hverju þarf að sá til að uppskera í viðskiptum. Ella mun efnahagslegt umhverfi ekki geta vaxið og dafnað. Það er staðreynd að ekkert land hefur náð árangri í efnahagslegri framþróun án öflugs geira einkafyrirtækja. Síðast en ekki síst færa samtökin ráðgjafa úr einkafyrirtækjum inn í skólana þar sem þeir leiðbeina og miðla reynslu sinni ásamt efni samtakanna í fullri samvinnu við skólastofnanir og stuðla með því að hvatningu og þekkingu á hina frjálsa markaðs og hagkerfi til komandi kynslóða frumkvöðla, stjórnenda, stefnumótenda og kjósenda. Árið 2007 var Fyrirtækjasmiðja UF valinn sem besta leiðin í menntun frumkvöðla af Evrópusambandinu. Nýlegar rannsóknir á norðurlöndunum sýna að hlutföll þeirra sem taka þátt í Fyrirtækjasmiðjunni og stofna fyrirtækja snemma á lífsleiðinni er um 23% á móti einungis 13% þeirra sem ekki hafa tekið þátt. |