|
Framtíðarsmiðjan 8 kennslustunda námskeið fyrir grunnskólanemendur á aldrinum 14-15 ára. Valkvætt að mæta einu sinni í viku í 8 vikur eða tvisvar í 4 vikur. Efnið er þrautreynt og hefur gefið góða raun við að vekja unglinga til umhugsunar um framtíðaráform og ábyrgð í fjármálum. Námsefnið er kennt af ráðgjafa sem starfar í atvinnulífinu í nágrenni við skólann. Ef ekki tekst að útvega ráðgjafa getur kennari leiðbeint. Það er hins vegar mjög æskilegt að fá utanaðkomandi sem tengir efnið þá beint við atvinnulífið. | 1. Að markaðssetja sig Nemendur kynnast hlutverki sínu á vinnumarkaði, átta sig á hvað markaður er og hanna m.a nafnspjöld til að koma sér á framfæri. | 2. Að þekkja hæfileika sýna og áhugasvið Nemendur greina persónulega hæfileika sýna og tengja þá mismunandi störfum. Þau gera sér grein fyrir val þeirra í dag hefur áhrif á hlutverk þeirra á markaði í framtíðinni. | 3. Atvinnutækifæri Nemendur lesa atvinnuauglýsingar, fylla út starfsumsókn. Þau ræða gildi starfa og segja frá reynslu sinni eða framtíðaráætlunum varðandi störf. | 4. Atvinnuviðtöl Nemendur læra hvað þarf að hafa í huga í viðtölum, skoða árangursrík og misheppnuð atvinnuviðtöl og fara yfir lista um ráðleggingar í viðtölum. | 5. Persónuleg fjárhagsáætlun Nemendur vinna í litlum hópum og gera fjárhagsáætlun fyrir ungling. Þau læra ástæður þess að gera áætlun og einkenni þeirra. | 6. Fjármál heimila Nemendur áætla kostnað byggðan á væntanlegum tekjum og ræða skipulag fjármála fjölskyldunnar. | 7. Að nota lánstraust viturlega Nemendur ræða kosti og galla þess að taka lán til að kaupa fyrir. | 8. Hlutabréfamarkaðurinn og greining fjárfestinga Kynning á hlutabréfamarkaðnum og gervi kaup og sala hlutabréfa. | Kennslutilhögun Ráðgjafi úr atvinnulífinu leiðir efnið og stýrir þessum tímum. Hann tekur dæmi úr eigin reynslu á vinnumarkaði og tengir efnið með þeim hætti við raunveruleikann. Kennarar eru ætíð viðstaddir og vinna með ráðgjafanum. Ráðgjafar koma frá fyrirtækjum aðildarfélaga JAI- Ungra frumkvöðla og ýmsum félagasamtökum og fyrirtækjum sem eiga samstarf við JAI. Framtíðarsmiðjan er skólum og nemendum að kostnaðarlausu.
|