| Um okkur |
|
|
|
Ungir frumkvöðlar eru frjáls félagasamtök og aðilar að Junior Achievement Worldwide. Ungir frumkvöðlar voru stofnaðir á Íslandi árið 2002 og hafa síðan þá þýtt og staðfært námsefni til nota í skólum landsins á skólatíma. Efni námskeiðanna allra tengist viðskiptum, siðferðisvitund nemenda og hafa það sammerkt að efla frumkvöðlaanda meðal unga fólksins. Allt námsefni ungra frumkvöðla er skólum að kostnaðarlausu. Ungir frumkvöðlar starfa náið með JA-YE í Evrópu.
Í stuttu máli má segja að markmiðið sé að tengja atvinnulíf og skóla til að efla frumkvöðla- siðferðisvitund og ábyrgðartilfinningu nemenda á öllum aldri. Skólarnir sem hafa verið í samstarfi við okkur hafa tekið okkur ákaflega vel og höfum við átt í fullu fangi við að anna eftirspurn. Námsefni Ungra frumkvöðla er sérhannað fyrir alla bekki grunnskóla og framhaldsskóla. Þau námskeið sem þýdd hafa verið og staðfærð fyrir Ísland eru: Framtíðarsmiðjan sem er átta vikna námskeið fyrir 9. bekk grunnskóla og Fyrirtækjasmiðjan sem er þrettán vikna námskeið fyrir nemendur í framhaldsskólum. Auk námskeiða fyrir 1. og 2. bekk grunnskóla.
Rík áhersla er lögð á að þeir sem leiða námskeiðin í skólunum séu fulltrúar atvinnulífsins, fólk sem hefur mismunandi menntun, þekkingu og reynslu að miðla. Þetta fólk kemur í skólana með leyfi atvinnurekenda sinna og öðlast við það ákaflega sérstaka og mikilvæga reynslu af því að miðla eigin þekkingu, segja frá starfi sínu og starfsemi fyrirtækis síns. Starfsfólkið öðlast sjálfsöryggi í framsetningu og jafnvel nýja þekkingu og sýn á viðfangsefni námskeiðanna. Fulltrúar atvinnulífsins eru sérlega velkomnir í skólana og er ráðgjafahlutverkið ákaflega þakklátt og gefandi starf.
Það má því segja að hagur þeirra sem ganga til liðs við Unga frumkvöðla sé margvíslegur. Þátttaka í mikilvægu fræðslustarfi og samfélagsleg þátttaka sem eflir klárlega ímynd og gildi fyrirtækisins. Óvenjuleg en árangursrík endurmenntun fyrir starfsmenn sem krefst lágmarkskostnaðar og fjarveru úr starfi . Bætt sýn starfsmanna á eigið starf og betri einbeiting hlýst af því að vera nemendum góð fyrirmynd.
Það er því von okkar að íslensk fyrirtæki og stjórnendur leggi sitt af mörkum í þessu verkefni með því að ganga til liðs við Unga frumkvöðla og opna starfsfólki sínu og framtíðarstarfsfólki einstök tækifæri til aukinnar menntunnar.
Meðlimir Ungra frumkvöðla eru einstaklingar, fyrirtæki, bæjarfélög og stofnanir sem leggja til fjármagn, þekkingu og aðgengi að starfsfólki sínu. Áhersla er lögð á óháða þekkingarmiðlun fólks sem hefur að baki fjölbreytta þekkingu, menntun og reynslu.
Starfsmaður ungra frumkvöðla er:
Gunnar Jónatansson, framkvæmdastjóri -
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
-----------
gsm: 664 6550 - s: 578-1500
Skrifstofa samtakanna er að Nethyl 2B, 110 Reykjavík
kt: 701002-3420
Stjórn Ungra frumkvöðla er þannig skipuð:
Gunnar Páll Pálsson, stjórnarformaður
Lára Jóhannsdóttir MBA
Guðrún Eyjólfsdóttir hjá SA
|

