Það líður að lokum Fyrirtækjasmiðjunnar og stefnum við á uppskeruhátíðina mánudaginn 26. apríl kl 15.30-17.00. Undanfarin ár hefur uppskeruhátíðin farið fram á föstudegi en sá dagur hefur oftar en ekki verið undirlagður öðrum viðburðum og þess vegna færum við okkur yfir á mánudag. Allt stefnir í að við ljúkum þessari ferð á sama stað og við hófum hana en þó ekki alveg. Við byrjuðum í Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti en endum í glænýjum höfuðstöðvum HR við Menntaveg í Öskjuhlíðinni.
Verðlaunaumsókn má finna HÉR og það þarf að muna að skila í allra síðasta lagi mánudaginn 19. apríl kl 14.00 en Rósa Kristín tekur á móti umsóknum og gögnum. Best að hringja á undan sér í 664-6555.
Átta fyrirtæki koma til með að kynna fyrirtæki sín í lágmark 4 mínútur og hámark 7 mínútur fyrir framan dómnefnd sem einnig spyr spurninga. Dómarar meta gögn og verðlaunaumsóknir og velja þau átta fyrirtæki sem eru með kynningu.
Öll fyrirtækin koma til greina sem verðlaunahafar þó þau séu ekki með kynningu.
Keppt er um þrenn verðlaun að þessu sinni. Besta fyrirtækið er sem fyrr aðalverðlaunin og veitir keppnisrétt í keppni Ungra frumkvöðla í Evrópu sem fram fer á Ítalíu síðar í sumar. Sjá nánar hér.
Nánar...