SKIL Á MYNBANDI

Skil á myndbandi Ungir frumkvöðlar 2024



Síðasti skiladagur er 8. apríl kl. 16.00

Leiðbeiningar fyrir kynningarmyndband – lesist vel!

Leiðbeiningar fyrir kynningarmyndband – lesist vel!


Hvert fyrirtæki skal senda inn kynningarmyndband sem notað verður í tvennum tilgangi


Fyrir dómnefnd. Dómnefnd fer fyrst yfir myndböndin en styðst svo við lokaskýrsluna til að fá betra yfirlit.

Fyrir heimsíðu Ungra frumkvöðla. Öll myndbönd verða sett inn á sérstaka kynningarsíðu þar sem almenningur getur skoðað allar vörur og þjónustu sem boðið verður upp á í Fyrirtækjasmiðunni 2024.


Í myndbandinu þarf eftirfarandi að koma fram(nokkurn veginn í þessari röð):


1. Nafn fyrirtækis & hugmyndar ásamt nafni skóla

2. Lýsing á viðskiptahugmyndinni. Hér þarf að draga fram:


  1. Lýsing á viðskiptahugmyndinni
  2. Hver er þörfin/vandamálið sem ætlað er að leysa
  3. Hver er lausnin?
  4. Nýnæmi hugmyndarinnar(ef eitthvað er)
  5. Hverjir eru aðgreinandi þættir vörunnar/þjónustunnar, miðað við svipaðar vörur/þjónustu á markaðnum
  6. Hvernig er samkeppnin?


3. Hver er markhópurinn/helstu viðskiptavinir

4. Hvar geta viðskiptavinir nálgast vöruna/þjónustuna



Myndbandið má að hámarki vera 120 sekúndur (við mælum þó með 60 – 90 sek.) að lengd en að öðru leiti er myndbandgerðin frjáls.

Muna bara að draga fram öll ofangreind atriði og setja fram á skýran hátt. Muna einnig að myndir segir meira en 1000 orð…

Contact us

Skil á myndbandi – Ungir frumkvöðlar 2024

Share by: