40 fyrirtæki valin í úrslit af 150 fyrirtækjum
Eftirfarandi fyrirtæki eru komin í úrslit í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla-JA Iceland 2026

Þessi fyrirtæki fara í úrslit og mæta í viðtöl hjá dómurum í Arion banka mánudaginn 27. apríl milli kl. 9.00-12.30. Uppskeruhátíðin verður síðan í fyrilestrarsal Arion banka, höfuðstöðvunum Borgartúni 19 frá kl. 13.00-16.30/17.00 þriðjudaginn 28. apríl. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mun veita verðlaun í eftirfarandi flokkum:
- Aðalverðlaun: Fyrirtæki ársins, keppir fyrir Íslands hönd í stærstu nýsköpunarkeppni í Evrópu GEN_E 2026 7. – 10. júlí.
- Fyrirtæki ársins 2. Sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18. - 21. maí (samstarfsverkefni með JA Norway, JA Finland og JA Sweden, en 30 þátttakendur fara héðan)
- Fyrirtæki ársins 3. Sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18.- 21. maí
- Frumlegasti sölubásinn
- Öflugasta sölustarfið
- Áhugaverðasta nýsköpunin
- Samfélagsleg nýsköpun
- Áhugaverðasta fjármálalausnin
- Besti sjó-bissnessinn
- Matvælafyrirtæki ársins
- Besta hönnunin
- Áhugaverðasta tækninýjungin
- Umhverfisvænasta lausnin
Verðlaunahafar fá viðurkenningaskjöl og fallegt glerlistaverk sem er smíðað af Jónasi Braga glerlistamanni

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, stjórnarformaður Ungra frumkvöðla – JA Iceland og Jóna Bjarnadóttir framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun og stjórnarmaður í Ungum frumkvöðlum – JA Iceland veittu verðlaun og viðurkenningar til eftirfarandi fyrirtækja: · Fyrirtæki ársins – Urri, Menntaskólinn við Sund · Fyrirtæki ársins 2. Sæti – Hjartaborg, Verslunarskóli Íslands · Fyrirtæki ársins 3. Sæti – Rs. Snúður, Menntaskólinn við Hamrahlíð · Frumlegasti sölubásinn – Smáralind – Marín, Menntaskólinn við Sund · Öflugasta sölustarfið – Smáralind – Urri, Menntaskólinn við Sund · Áhugaverðasta nýsköpunin – Þörungurinn, Verslunarskóli Íslands · Samfélagsleg nýsköpun – Tilfinningaeyjan, Verslunarskóli Íslands · Áhugaverðasta fjármálalausnin - Mynta, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ · Besti sjó-bissnessinn – Atlas, Verslunarskóli Íslands · Matvælafyrirtæki ársins – Berjabiti, Menntaskólinn við Sund · Besta hönnunin – Andrúm, Tækniskólinn · Áhugaverðasta tækninýjungin – SR Turning, Tækniskólinn · Umhverfisvænasta lausnin – Turnip Up, Menntaskólinn við Sund

Fyrirtækið Urri sem framleiðir hundaleikfang sem er unnið úr notuðum fiskinetum, tennisboltum og fiskiroði. Urri er í eigu fimm nemenda í Menntaskólanum við Sund í þeirra; Ölmu Aspar Óskarsdóttur, Birnu Kolbrúnar Jóhannsdóttur, Ketils Guðlaugs Ágústssonar, Selmu Lísu Björgvinsdóttur og Aron Vals Gunnlaugssonar. Uppskeruhátíðin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka miðvikudaginn 30. apríl. Urri mun keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2025 sem fer fram í Aþenu, Grikklandi , dagana 1. – 3. júlí. Um 6.500.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2025“ Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju!


