Fyrirtækið Þekktu landið! frá Verslunarskóla Íslands var valið fyrirtæki ársins 2026 í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland
Fyrirtækið Þekktu landið! sem framleiðir fræðandi og skemmtilegt borðspil sem gengur út á það að vita hvar staðsetningar þekktra staða eru á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina skemmtun og fræðslu, þannig að leikmenn læri meira um landið sitt á meðan þeir spila. Eigendur eru fimm nemendur í Verslunarskóla Íslands þær: Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir, Hanna Falksdóttir Krüger.
Uppskeruhátíðin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 28. apríl. Þekktu landið! mun keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2026 sem fer fram í Riga, Lettlandi , dagana 7. – 10. júlí. Um 400.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2026“
40 fyrirtæki frá 17 framhaldsskólum voru valin úr hópi 150 fyrirtækja sem 620 nemendur stofnuðu á önninni, til að taka þátt í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026

Fv. Petra Bragadóttir framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla-JA Iceland, Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir, Hanna Falksdóttir Krüger, Þóra Hrólfsdóttir kennari í Verzlunarskóla Íslands. Ljósmyndari: Kristinn Magnússon
Þór Sigfússon forstjóri Sjávarklasans og Guðfinna Helgadóttir rekstrarstjóri á viðskiptasviði Arion banka veittu verðlaun í eftirfarandi flokkum:
- Aðalverðlaun: Fyrirtæki ársins, keppir fyrir Íslands hönd í stærstu nýsköpunarkeppni í Evrópu GEN_E 2026 7. – 10. júlí.
Þekktu landið! Verslunarskóli Íslands
2..Fyrirtæki ársins 2. sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18. - 21. maí (samstarfsverkefni með JA Norway, JA Finland og JA Sweden, en 30
þátttakendur fara héðan)
Grásíða, Verslunarskóla Íslands
3. Fyrirtæki ársins 3. sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18.- 21. maí
Eyjakonfekt, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
4. Frumlegasti sölubásinn, Hlýja Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
5. Öflugasta sölustarfið – Smáralind, Blær, Menntaskólinn við Sund
6. Áhugaverðasta nýsköpunin – Norður Rækja, Verkmenntaskólinn á Akureyri
7. Samfélagsleg nýsköpun, Hugljómi, Verslunarskóli Íslands
8. Áhugaverðasta fjármálalausnin, Framtak, Tækniskólinn
9. Matvælafyrirtæki ársins, Krílabiti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
10. Besta hönnunin, Sjávardjásn, Menntaskólinn við Sund
11. Áhugaverðasta tækninýjungin, Brauðbox, Tækniskólinn
12.. Umhverfisvænasta lausnin, Land, Verslunarskóli Íslands
Jennifer Bushman, framkvæmdastjóri Fed by Blu og Þór Sigfússon forstjóri Sjávarklasans veittu verðlaun fyrir besta sjó-bissnessinn:
13.Besti sjó-bissnessinn, HafBit, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ




