Íslenski sjávarklasinn býður kennsluefni á netinu

Undanfarin ár hafa hundruðir nemenda í framhaldsskólum fengið þjálfun í stofnun og rekstri fyrirtækja. Sá hópur framhaldsskólanemenda, sem stundað hefur nám á þessu sviði, hefur vaxið mjög hratt síðustu ár. Ástæða þess er ekki síst tilkoma Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland sem boðið hefur skólum að liðsinna við nám á þessu sviði hérlendis. Í náminu eru nemendur hvattir til að koma viðskiptahugmynd í framkvæmd með því að stofna fyrirtæki. Haldin hefur verið sýning á þessum fyrirtækjum nemendanna í Smáralind um árabil. Sjávarklasinn er aðili að þessu verkefni.


Um 600 nemendur tóku þátt í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland á árinu 2019 og stefnt var að töluverðri aukningu á þessu ári.


Stór hluti þessara nemenda hefur á síðustu árum heimsótt nýsköpunarfyrirtæki og kynnt sér stofnun þeirra og rekstur. Þar sem ekki getur orðið að því um þessar mundir ákvað Sjávarklasinn að láta gera kennsluefni sem gæti nýst nemendum í fjarnámi. Þar eru viðtöl við stofnendur nýsköpunarfyrirtækja sem segja frá tilurð sinna fyrirtækja og hvernig hugmyndin hefur þróast í raunverulegt fyrirtæki. Þá gefa stofnendurnir nemendunum, sem nú eru að undirbúa stofnun sinna fyrirtækja í fyrirtækjasmiðju framhaldsskólanna, góð ráð. 


Fyrstu níu kynningarnar liggja nú fyrir og eru aðgengilegar á youtube rás Sjávarklasans.


Þá er stefnt að því að kynningarnar verði á menntavef RÚV innan skamms. Von er á fleiri kynningum fljótlega ef aðstæður leyfa.

Ísfélag Vestmannaeyja og Marel eru stuðningsaðilar þessarar kennslumyndbanda.



Nánari upplýsingar veitir Sigurður D. Stefánsson nýsköpunarstjóri Sjávarklasans í síma 8697717

Eftir Petra Bragadóttir 2. maí 2025
Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, stjórnarformaður Ungra frumkvöðla – JA Iceland og Jóna Bjarnadóttir framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun og stjórnarmaður í Ungum frumkvöðlum – JA Iceland veittu verðlaun og viðurkenningar til eftirfarandi fyrirtækja: · Fyrirtæki ársins – Urri, Menntaskólinn við Sund · Fyrirtæki ársins 2. Sæti – Hjartaborg, Verslunarskóli Íslands · Fyrirtæki ársins 3. Sæti – Rs. Snúður, Menntaskólinn við Hamrahlíð · Frumlegasti sölubásinn – Smáralind – Marín, Menntaskólinn við Sund · Öflugasta sölustarfið – Smáralind – Urri, Menntaskólinn við Sund · Áhugaverðasta nýsköpunin – Þörungurinn, Verslunarskóli Íslands · Samfélagsleg nýsköpun – Tilfinningaeyjan, Verslunarskóli Íslands · Áhugaverðasta fjármálalausnin - Mynta, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ · Besti sjó-bissnessinn – Atlas, Verslunarskóli Íslands · Matvælafyrirtæki ársins – Berjabiti, Menntaskólinn við Sund · Besta hönnunin – Andrúm, Tækniskólinn · Áhugaverðasta tækninýjungin – SR Turning, Tækniskólinn · Umhverfisvænasta lausnin – Turnip Up, Menntaskólinn við Sund
Eftir Petra Bragadóttir 1. maí 2025
Fyrirtækið Urri sem framleiðir hundaleikfang sem er unnið úr notuðum fiskinetum, tennisboltum og fiskiroði. Urri er í eigu fimm nemenda í Menntaskólanum við Sund í þeirra; Ölmu Aspar Óskarsdóttur, Birnu Kolbrúnar Jóhannsdóttur, Ketils Guðlaugs Ágústssonar, Selmu Lísu Björgvinsdóttur og Aron Vals Gunnlaugssonar. Uppskeruhátíðin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka miðvikudaginn 30. apríl. Urri mun keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2025 sem fer fram í Aþenu, Grikklandi , dagana 1. – 3. júlí. Um 6.500.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2025“ Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju!
Eftir Petra Bragadóttir 27. apríl 2025
Eftirfarandi teymi eru komin í úrslit í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla - JA Iceland 2025: