SamVís - ConKrete fulltrúar háskólastigsins á GEN_E 2025

SamVís - ConKrete voru í 3 sæti í Gullegginu og verða fulltrúar JA Iceland- Ungra frumkvöðla á GEN_E 2025 sem fer fram í Aþenu 1.-3 júlí nk. Efsta "hreinræktaða" háskólateymið fékk ferð á stæstu nýsköpunarkeppni í Evrópu að launum. Samvís þróar nýja kynslóð leitarvéla fyrir vísindamenn og námsmenn með gervigreindartækni. Lausnin auðveldar aðgengi að rannsóknum og skapar brú milli vísinda og samfélags. Það verður gaman að fylgjast með gengi þeirra í sumar.


Jenna Guðmundsdóttir verkefnastjóri Gulleggsins, Guðfinna Helgadóttir Arionbanka dómari,, Birgir Bragi Gunnþórsson, Einir Sturla Arinbjarnarson, Haukur Ingi Sigrúnar Jónsson og Jóhann Tómas Porta eigendur SamVís - ConKrete, Petra Bragadóttir framkvæmdastjóri Ungra furmkvöðla - JA Iceland, Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK

Eftir Petra Bragadóttir 29. apríl 2026
Fyrirtækið Þekktu landið! sem framleiðir fræðandi og skemmtilegt borðspil sem gengur út á það að vita hvar staðsetningar þekktra staða eru á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina skemmtun og fræðslu, þannig að leikmenn læri meira um landið sitt á meðan þeir spila. Eigendur eru fimm nemendur í Verslunarskóla Íslands þær: Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir, Hanna Falksdóttir Krüger. Uppskeruhátíðin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 28. apríl. Þekktu landið! mun keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2026 sem fer fram í Riga, Lettlandi , dagana 7. – 10. júlí. Um 400.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2026“ 40 fyrirtæki frá 17 framhaldsskólum voru valin úr hópi 150 fyrirtækja sem 620 nemendur stofnuðu á önninni, til að taka þátt í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026
Eftir Petra Bragadóttir 24. apríl 2026
Eftirfarandi fyrirtæki eru komin í úrslit í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla-JA Iceland 2026
Eftir Petra Bragadóttir 2. maí 2025
Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, stjórnarformaður Ungra frumkvöðla – JA Iceland og Jóna Bjarnadóttir framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun og stjórnarmaður í Ungum frumkvöðlum – JA Iceland veittu verðlaun og viðurkenningar til eftirfarandi fyrirtækja: · Fyrirtæki ársins – Urri, Menntaskólinn við Sund · Fyrirtæki ársins 2. Sæti – Hjartaborg, Verslunarskóli Íslands · Fyrirtæki ársins 3. Sæti – Rs. Snúður, Menntaskólinn við Hamrahlíð · Frumlegasti sölubásinn – Smáralind – Marín, Menntaskólinn við Sund · Öflugasta sölustarfið – Smáralind – Urri, Menntaskólinn við Sund · Áhugaverðasta nýsköpunin – Þörungurinn, Verslunarskóli Íslands · Samfélagsleg nýsköpun – Tilfinningaeyjan, Verslunarskóli Íslands · Áhugaverðasta fjármálalausnin - Mynta, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ · Besti sjó-bissnessinn – Atlas, Verslunarskóli Íslands · Matvælafyrirtæki ársins – Berjabiti, Menntaskólinn við Sund · Besta hönnunin – Andrúm, Tækniskólinn · Áhugaverðasta tækninýjungin – SR Turning, Tækniskólinn · Umhverfisvænasta lausnin – Turnip Up, Menntaskólinn við Sund