Samstarf við Gulleggið - KLAK
Ungir frumkvöðlar - JA Iceland og KLAK
Samningur var undirritaður nýverið milli KLAKS og Ungra frumkvöðla - JA Iceland. Vinningshafar Gulleggsins á háskólastigi keppa fyrir Íslands hönd á GEN_E 2025 sem fer fram í Aþenu, Grikklandi 1.- 3. júlí, en GEN_E er stæsta nýsköpunarkeppni í Evrópu. Þetta er skemmtileg nýjung og við verðum þá með lið bæði á framhalds- og háskólastigi í keppninni.. Úrslit Gulleggsins fara fram í Grósku 14. febrúar og úrslit Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla fara fram í Arion banka 30. apríl. Það verður spennandi að sjá hverjir verða hinir útvöldu sem fá að taka þátt í þessari frábæru keppni.

New paragraph

Kveikjan verður haldin í Háskólanum í Reykjavík, 12. nóvember 2026 kl. 16.00-18.00 í stofu M118. Þar verður farið yfir dagskrá vorannar 2027 og fyrrum nemendur Fyrirtækjasmiðjunnar sem eru í JA Alumni munu deila reynslu sinni og vera með góð ráð fyrir nemendur sem eru að fara af stað í Fyrirtækjasmiðjuna 2027.

Fyrirtækið Þekktu landið! sem framleiðir fræðandi og skemmtilegt borðspil sem gengur út á það að vita hvar staðsetningar þekktra staða eru á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina skemmtun og fræðslu, þannig að leikmenn læri meira um landið sitt á meðan þeir spila. Eigendur eru fimm nemendur í Verslunarskóla Íslands þær: Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir, Hanna Falksdóttir Krüger. Uppskeruhátíðin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 28. apríl. Þekktu landið! mun keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2026 sem fer fram í Riga, Lettlandi , dagana 7. – 10. júlí. Um 400.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2026“ 40 fyrirtæki frá 17 framhaldsskólum voru valin úr hópi 150 fyrirtækja sem 620 nemendur stofnuðu á önninni, til að taka þátt í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026


































