Sparkið 2023 Upphaf Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla - JA Iceland 12. janúar í Háskólanum í Reykjavík

Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla - JA Iceland verður ýtt úr vör í Háskólanum í Reykjavík

12. janúar kl. 17.00-18.00. Þar mun Ragnhildur Helgadóttir rektor HR bjóða fólk velkomið og kynna dagskrá annarinnar.  Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra verður með opnunarávarp.

.

Vinningshafar Fyrirtækjasmiðjunnar árin 2018, 2020 og 2021, sem eru stofnendur fyrirtækjanna Bökk, Dyngju og Hrauney munu segja frá reynslu sinni af þátttökuninni í Fyrirtækjasmiðjunni og lífinu eftir keppnina. Við vonumst til að sjá sem flesta þátttakendur Fyrirtækjasmiðjunnar 2023 í HR

New paragraph

Eftir Petra Bragadóttir • 18. október 2026
Kveikjan verður haldin í Háskólanum í Reykjavík, 12. nóvember 2026 kl. 16.00-18.00 í stofu M118. Þar verður farið yfir dagskrá vorannar 2027 og fyrrum nemendur Fyrirtækjasmiðjunnar sem eru í JA Alumni munu deila reynslu sinni og vera með góð ráð fyrir nemendur sem eru að fara af stað í Fyrirtækjasmiðjuna 2027.
Eftir Petra Bragadóttir • 29. apríl 2026
Fyrirtækið Þekktu landið! sem framleiðir fræðandi og skemmtilegt borðspil sem gengur út á það að vita hvar staðsetningar þekktra staða eru á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina skemmtun og fræðslu, þannig að leikmenn læri meira um landið sitt á meðan þeir spila. Eigendur eru fimm nemendur í Verslunarskóla Íslands þær: Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir, Hanna Falksdóttir Krüger. Uppskeruhátíðin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 28. apríl. Þekktu landið! mun keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2026 sem fer fram í Riga, Lettlandi , dagana 7. – 10. júlí. Um 400.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2026“ 40 fyrirtæki frá 17 framhaldsskólum voru valin úr hópi 150 fyrirtækja sem 620 nemendur stofnuðu á önninni, til að taka þátt í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026
Eftir Petra Bragadóttir • 24. apríl 2026
Eftirfarandi fyrirtæki eru komin í úrslit í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla-JA Iceland 2026