Sparkið 2025 í Háskólanum í Reykjavík föstudaginn 10. janúar
"Sparkið 2025" fer fram í Háskólanum í Reykjavík föstudaginn 10. janúar kl. 16.00 - 17.00.
Þar mun Ragnhildur Helgadóttir rektor Háskólans í Reykjavík bjóða fólk velkomið og
Halla Tómasdóttir forseti Íslands vera með opnunarávarp. Orri Einarsson stjórnarmaður í JA Alumni mun segja frá starfsemi JA Alumni á önninni. Að því loknu munu vinningshafar fyrri ára segja frá reynslu sinni og hvað á daga þeirra hefur drifið frá þátttöku í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla.
Við vonumst til að sjá sem flesta nemendur, mentora og kennara sem verða með í Fyrirtækjasmiðjunni á vorönninni.

New paragraph

Kveikjan verður haldin í Háskólanum í Reykjavík, 12. nóvember 2026 kl. 16.00-18.00 í stofu M118. Þar verður farið yfir dagskrá vorannar 2027 og fyrrum nemendur Fyrirtækjasmiðjunnar sem eru í JA Alumni munu deila reynslu sinni og vera með góð ráð fyrir nemendur sem eru að fara af stað í Fyrirtækjasmiðjuna 2027.

Fyrirtækið Þekktu landið! sem framleiðir fræðandi og skemmtilegt borðspil sem gengur út á það að vita hvar staðsetningar þekktra staða eru á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina skemmtun og fræðslu, þannig að leikmenn læri meira um landið sitt á meðan þeir spila. Eigendur eru fimm nemendur í Verslunarskóla Íslands þær: Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir, Hanna Falksdóttir Krüger. Uppskeruhátíðin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 28. apríl. Þekktu landið! mun keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2026 sem fer fram í Riga, Lettlandi , dagana 7. – 10. júlí. Um 400.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2026“ 40 fyrirtæki frá 17 framhaldsskólum voru valin úr hópi 150 fyrirtækja sem 620 nemendur stofnuðu á önninni, til að taka þátt í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026


































